
FKA Vesturland telur í nýtt starfsár með nýrri stjórn
Ný stjórn Félags kvenna í atvinnulífinu á Vesturlandi var kosin nú á dögunum. Alexandra Ýr Sigurðardóttir er nýr formaður deildarinnar, Jóhanna Elva Ragnarsdóttir gjaldkeri og Valdís Ósk Margrétardóttir ritari. Þá komu Silja Guðbjörnsdóttir inn sem samskiptatengill deildarinnar og meðstjórnendur eru þær Dr. Eyrún Eyþórsdóttir og Halldóra Guðjónsdóttir. „FKA Vesturland er vettvangur fyrir konur í atvinnulífinu á Vesturlandi sem hafa gagn og gaman af því að efla tengslanet sitt og styrkja hver aðra,“ segir Alexandra Ýr nýr formaður FKA Vesturlandi. „Markmið deildarinnar er að stuðla að samheldni og samvinnu kvenna og vera hreyfiafl fyrir konur í atvinnulífinu á Vesturlandi. Starf deildarinnar hófst árið 2018 og var stofnfundur haldinn í Stykkishólmi og í dag erum við rúmlega fimmtíu konur sem erum í deildinni.“