Ferðafólk við Hraunfossa í Borgarfirði. Ljósm. mm

Opið fyrir umsóknir í viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla í ferðaþjónustu

Eftir fimm ára hlé hafa KLAK – Icelandic Startups og Ferðaklasinn ákveðið að endurvekja Startup Tourism, viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla í ferðaþjónustu. Opnað var fyrir umsóknir 19. september. Hraðallinn, var keyrður fjórum sinnum á árunum 2016-2019 og skilaði góðum árangri fyrir íslenska ferðaþjónustu, en 15 af þeim 39 sprotafyrirtækjum sem tóku þátt eru enn starfandi í dag.

Opið fyrir umsóknir í viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla í ferðaþjónustu - Skessuhorn