Ferðamenn á Þingvöllum haustið 2023. Ljósm. mm

Fjallað verður um álagsstýringu á ferðamannastöðum

Ferðaþjónustudagurinn 2024 fer fram í Silfurbergi í Hörpu í Reykjavík mánudaginn 7. október. Þar verður fjallað um álagsstýringu á fjölsóttum ferðamannastöðum út frá ýmsum hliðum. Sjónum verður beint að áskorunum og reynslu af álagsstýringu á áfangastöðum hér á landi sem erlendis og nauðsynlegu samtali stjórnvalda og fyrirtækja í ferðaþjónustu um viðfangsefnið. Þá verður jafnframt horft til þess hvernig álagsstýring birtist í markmiðum og aðgerðum í nýsamþykktri ferðamálastefnu.

Fjallað verður um álagsstýringu á ferðamannastöðum - Skessuhorn