Ólsarinn Magnús Þorsteinsson, Maggi Þuru, sem er 88 ára tók lagið í dágóða stund með harmonikkuleikara í bás Sjóvá Almennra og sló í gegn meðal gesta. Ljósm. vaks

Líf og fjör á Icefish 2024 – Myndasyrpa

Íslenska sjávarútvegssýningin er haldin þessa dagana í Fífunni í Kópavogi en hún hófst á miðvikudaginn og lýkur seinni partinn í dag. Sýningin er sú fjórtánda í röðinni og er elsta alþjóðlega sjávarútvegssýningin á Íslandi. Hún var fyrst haldin árið 1984 og hefur þróast í fjölbreytta vöru- og þjónustusýningu sem tekur á öllum þáttum atvinnugreinarinnar. Meðal þeirra sem voru með bás á sýningunni má nefna Baader, Hampiðjuna, Ísfell, Verkís, Arnarlax, OLÍS, N1, Samhenta og Borgarplast en alls voru þetta yfir tvö hundruð sýnendur í heildina.

Líf og fjör á Icefish 2024 - Myndasyrpa - Skessuhorn