Verkið gengur vel og hratt fyrir sig. Veggeiningarnar eru með klæðningu að utan, einangrun og frágengnum gluggum og hurðum. Í þakeiningunum er burðarvirki og einangrun en bárujárnið og þakpappinn er sett á þegar allt er komið upp. Ljósm. reykholar.is

Fyrsta raðhúsið af þremur að rísa á Reykhólum

Starfsmenn Tekta ehf. eru þessa dagana að reisa nýtt fjögurra íbúða raðhús á Reykhólum. Þeir hófust handa í vikunni og komin er upp önnur hliðin, allir skilveggir milli íbúða, hálfir gaflarnir og fyrsta einingin í seinni hliðina. Stefnt er að því að húsið verði komið undir þak um helgina.

Fyrsta raðhúsið af þremur að rísa á Reykhólum - Skessuhorn