Gestir þingsins í Hjálmakletti. Ljósmyndir: hig

Íbúaþing um stefnumótun sóknaráætlunar var haldið í Hjálmakletti – myndasyrpa

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi stóðu síðdegis í gær fyrir íbúaþingi um endurskoðun sóknaráætlunar Vesturlands. Fór þingið fram í Hjálmakletti í Borgarnesi. Guðveig Lind Eyglóardóttir, formaður SSV, setti þingið og kynnti Héðinn Unnsteinsson ráðgjafa frá Úrbana til leiks. Héðinn fór yfir vinnu sem þegar hefur farið fram og það samráð sem haft hefur verið við mismunandi hópa. Drög að framtíðarsýn landshlutans var kynnt, farið yfir áherslur síðustu sóknaráætlunar og hvernig hún hafi gengið eftir. Arnar Pálsson annar ráðgjafi frá Úrbana steig upp á svið til að kynna verkefni þingsins, en það var að ræða hvernig íbúar vildu þróa samfélagið á Vesturlandi, hvernig þeir vildu sjá fyrir sér framtíðina og hvaða áherslur þingið vilji leggja til að nýta tæplega 600 milljónir af opinberu fé sem rennur til landshlutans í gegnum uppbyggingarsjóð og áhersluverkefni sóknaráætlunar Vesturlands. Rán Flygering og Elín Elísabet Einarsdóttir teiknarar voru fengnar til að fanga stemninguna á þinginu og teiknuðu þær þátttakendur ásamt þeim ýmsu hugmyndum sem komu fram.

Íbúaþing um stefnumótun sóknaráætlunar var haldið í Hjálmakletti - myndasyrpa - Skessuhorn