Júlíus Þór Jónsson með fyrsta laxinn úr Grímsá í Borgarfirði að morgni þjóðhátíðardagsins í sumar. Grímsá er komin á þriðja hundrað laxa yfir heildarveiðina í fyrra. Ljósm. gb

Flestar vestlensku árnar að stórbæta sig miðað við síðasta ár

Veiði er nú lokið í nokkrum laxveiðiám á landinu og stutt eftir af veiðitímabilinu í öðrum. Ef marka má veiðitölur Landssamband veiðifélaga í gær, miðvikudaginn 18. september, er ljóst að flestar árnar á Vesturlandi eru að bæta sig verulega miðað við heildarveiðina 2023.