Fréttir

true

Svartserkur breiðist út á Breiðafirði

Svartserkur er ný og framandi tegund í fjörum hér við land. Svartserkur er sæsnigill sem ber fræðiheitið Melanochlamys diomedea. Áður hafði hann einungis fundist í Kyrrahafi en eini fundarstaðurinn utan þess er hér við land. Þetta kemur fram á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar. Leiða má að því líkum að sæsnigill þessi hafi borist hingað til lands með…Lesa meira

true

Svipaður fjöldi nemenda við LbhÍ en fækkun í bændadeild

Við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri eru um 400 nemendur skráðir í hefðbundið nám sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Umsóknum um nám í búfræði fækkaði talsvert milli ára, eða úr 62 í 21. Skessuhorn heyrði hljóðið í Ragnheiði I. Þórarinsdóttur rektor LbhÍ og ræddi um skólaárið sem nú væri hafið. „Nemendafjöldi við Endurmenntun Landbúnaðarháskóla…Lesa meira

true

Íbúðum fjölgar ekki allsstaðar í takti við íbúafjölgun

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur gefið út skýrslu fyrir ágúst 2024 um umsvif á fasteignamarkaði hér á landi. Fasteignamarkaður var líflegur í nýliðnum ársfjórðungi og hafa kaupsamningar ekki verið fleiri á öðrum ársfjórðungi að undanskildum árunum 2007 og 2021. Í júlí kom 301 nýbyggð íbúð inn á markaðinn á landinu öllu. Um helmingur þeirra er á…Lesa meira

true

Akstur úr Búðardal í Borgarnes fyrir menntaskólanema

Tilraunaverkefni með akstur á milli Búðardals og Borgarness mun halda áfram nú í haust en megináherslan er að bjóða framhaldsskólanemum úr Dalabyggð skólaakstur úr Búðardal í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Í samræmi við þá stöðu að flestir nemendur úr Dalabyggð hyggjast dvelja í Borgarnesi alla vinnuvikuna þá verða nú gerðar breytingar á leiðinni sem kallast…Lesa meira

true

Hlutu styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði HÍ

Þrjátíu og einn nýnemi við Háskóla Íslands, sem náð hefur framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs, tók við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ við hátíðlega athöfn í Aðalbyggingu Háskólans í dag. Styrkþegarnir koma úr öllum landshlutum og innritast í námsleiðir á öllum fimm fræðasviðum skólans. Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands var settur…Lesa meira

true

Orkuveitan býður út borun á 35 heitavatnsholum

Orkuveitan í samstarfi við KPMG hefur sett í loftið útboð á Evrópska efnahagssvæðinu á borun á allt að 35 rannsóknar- og vatnstökuholum á næstu fjórum árum. Bora á eftir heitu vatni fyrir ört stækkandi byggð á veitusvæðinu, en einnig verða boraðar holur til rannsókna á nýjum svæðum til frekari orku- og vatnsöflunar. Sævar Freyr Þráinsson…Lesa meira

true

Aðgerðum hætt á Breiðamerkurjökli

Um miðjan dag í gær hrundu ísgöng í Breiðamerkurjökli. Hópur ferðafólks var þar við hellaskoðun. Einn lést og annar slasaðist alvarlega. Í fyrstu var talið að 25 manns hefðu verið í hópnum sem var inni í hellinum og var mikill kraftur lagður í leit undir farginu að tveimur sem saknað var. Sú leit stóð fram…Lesa meira

true

Reynir með sigur í síðasta leik

Lokaumferðin í B riðli 5. deildar karla fór fram um helgina og í Ólafsvík mættust tvö neðstu liðin í riðlinum, Reynir Hellissandi og Afríka. Fyrir leik höfðu heimamenn unnið einn leik í deildinni sem var á móti Afríku og gert þrjú jafntefli á meðan lið Afríku hafði tapað öllum leikjum sínum í sumar. Benedikt Osterhammer…Lesa meira

true

Tvö rauð spjöld hjá Kára í tapi gegn Sindra

Kári og Sindri áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu í gær og var viðureignin í Akraneshöllinni. Með sigri í leiknum gat Kári nánast tryggt sér sæti í 2. deild en Sindri var í næstneðsta sætinu í afar harðri botnbaráttu. Fyrsta færið kom á áttundu mínútu leiksins þegar Sveinn Svavar Hallgrímsson átti sendingu að…Lesa meira

true

Fjölþætt heilsuefling heldur áfram í Borgarbyggð

Mánudaginn 12. ágúst var haldinn kynningarfundur í Borgarnesi um fjölþætta heilsueflingu 60 ára og eldri, á vegum Janusar heilsueflingar og Borgarbyggðar. Verkefnið hófst í fyrra en það er ætlað einstaklingum 60 ára og eldri sem eru með lögheimili í Borgarbyggð. Alls tóku 95 einstaklingar þátt í verkefninu á síðasta ári sem verður að teljast frábær…Lesa meira