Styrkþegar ásamt rektor og stjórn sjóðsins. Ljósm. Kristinn Ingvarsson.

Hlutu styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði HÍ

Þrjátíu og einn nýnemi við Háskóla Íslands, sem náð hefur framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs, tók við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ við hátíðlega athöfn í Aðalbyggingu Háskólans í dag. Styrkþegarnir koma úr öllum landshlutum og innritast í námsleiðir á öllum fimm fræðasviðum skólans.

Hlutu styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði HÍ - Skessuhorn