
Heilsueflandi hópur gerir teygjuæfingar við Hreðavatn í sumar. Ljósm. kkh
Fjölþætt heilsuefling heldur áfram í Borgarbyggð
Mánudaginn 12. ágúst var haldinn kynningarfundur í Borgarnesi um fjölþætta heilsueflingu 60 ára og eldri, á vegum Janusar heilsueflingar og Borgarbyggðar. Verkefnið hófst í fyrra en það er ætlað einstaklingum 60 ára og eldri sem eru með lögheimili í Borgarbyggð. Alls tóku 95 einstaklingar þátt í verkefninu á síðasta ári sem verður að teljast frábær þátttaka.