
Aðgerðum hætt á Breiðamerkurjökli
Um miðjan dag í gær hrundu ísgöng í Breiðamerkurjökli. Hópur ferðafólks var þar við hellaskoðun. Einn lést og annar slasaðist alvarlega. Í fyrstu var talið að 25 manns hefðu verið í hópnum sem var inni í hellinum og var mikill kraftur lagður í leit undir farginu að tveimur sem saknað var. Sú leit stóð fram á morgun. Þá kom í ljós að í hópnum höfðu einungis verið 23 og var leit þá hætt, enda leitarsvæðið þá einnig fullkannað.
Ljóst er að björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar unnu þrekvirki við afar erfiðar aðstæður. Engum tækjum var hægt að beita á vettvangi og var því handgrafið í leit að fólkinu, í kapphlaupi við tímann. Meðfylgjandi mynd er frá Landsbjörgu.