Fréttir

true

Fjölskylduútilega skátafélagsins Stíganda

Laugardaginn 14. ágúst sl. hélt skátafélagið Stígandi í Dalabyggð fjölskylduútilega við bæinn Á á Skarðsströnd. Skessuhorn heyrði í Katrínu Lilju Ólafsdóttur, félagsforingja skátafélagsins Stíganda. „Útilega gekk vel og aðstaðan á Á var til fyrirmyndar fyrir hópa sem vilja hafa gaman saman í gullfallegu landslagi við Breiðafjörðinn. Við fengum þokkalegt veður, töluverða rigningu inn á milli…Lesa meira

true

Óslitin starfsemi Pípó á Akranesi í hálfa öld

Fjölskyldan tengist Básendaflóðinu og einnig Ægisbrautarflóðinu 185 árum síðar Þegar kennitala fyrirtækja er skráð má draga töluna fjörutíu frá fremstu tveimur tölustöfunum í henni og finna þannig út stofndag viðkomandi fyrirtækis. Samkvæmt því átti pípulagningafyrirtækið Pípó ehf á Akranesi afmæli 24. júlí síðastliðinn, en það hefur haldið uppi óslitinni starfsemi undir sömu kennitölu í 50…Lesa meira

true

Lions færir Heilsugæslustöðinni veglega gjöf

Lionsklúbbur Grundarfjarðar kom færandi hendi á Heilsugæslustöð HVE í Grundarfirði síðastliðinn mánudag. Þá mættu Lionsliðar með nýtt ómskoðunartæki sem á eftir að nýtast vel á stöðinni og spara bæði tíma og rannsóknarferðir. Með tækinu er til dæmis hægt að greina blóðtappa, nýrnasteina, lungnabólgu, loftbrjóst og margt annað. Einnig mun það nýtast í mæðravernd. Tækið er…Lesa meira

true

Byggðabragur þriggja sveitarfélaga rannsakaður

Bjarki Þór Grönfeldt, doktor í stjórnmálasálfræði, ásamt Vífli Karlssyni, hagfræðingi og dósent við Háskólann á Bifröst og prófessor við Háskólann á Akureyri hafa gefið út skýrslu sem ber heitið „Byggðabragur: Félagssálfræðileg rannsókn á þremur íslenskum sveitarfélögum.“ Aðdragandi rannsóknarinnar var sá að íbúakannanir hafa bent til þess að svokallaður byggðabragur geti verið gjörólíkur milli áþekkra sveitarfélaga.…Lesa meira

true

Ólavía gefur til Barnaspítala Hringsins

Hún Ólavía Þorkelsdóttir er tíu ára Skagamær. Hún var einungis fimm ára að aldri þegar hún var greind með stjarnfrumuæxli í heila, sem er afar sjaldgæf og slæm tegund af krabbameini hjá börnum. Við tók stíf meðferð. Í kjölfar þess að sjúkdómurinn tók sig upp að nýju ári síðar gekkst hún undir nýja tegund af…Lesa meira

true

Stækka Krílakot í Ólafsvík

Unnið er að stækkun á leikskólanum Krílakoti í Ólafsvík. Viðbyggingin er húseining sem fengin var frá Hjallastefnunni, en stærstur hluti þeirra var nýttur til að reisa Höllina í Ólafsvík. Að sögn Kristins Jónasonar bæjarstjóra í Snæfellbæ er stækkunin 80 fermetrar og er gert ráð fyrir að taka húsnæðið í notkun í desember. Kristinn segir ennfremur…Lesa meira

true

Börn í umferðinni

Nú eru skólar að hefjast af krafti á Vesturlandi eftir sumarleyfi og margir án efa spenntir að setjast aftur á skólabekk og hitta bekkjarfélaga. Lögregla minnir ökumenn á að aka varlega, sér í lagi námunda við grunn- og leikskóla enda eru þar margir á ferli og þar á meðal nýir vegfarendur sem eru að hefja…Lesa meira

true

Létta undir með foreldrum smábarna

Barnapakki Borgarbyggðar og Öldunnar er lítið framlag sveitarfélagsins og samstarfsaðila til að létta undir með foreldrum og/eða forráðafólki barna sem fædd eru á þessu ári og því síðasta. Þjónustuaðilar í Borgarbyggð hafa tekið höndum saman og fæst 10.000kr inneign hjá nokkrum fyrirtækjum en Aldan, verndaður vinnustaður í Borgarbyggð, annast utanumhald á þessu verkefni í samstarfi…Lesa meira

true

Pílufélag Akraness fær aðild innan ÍA

Í tilkynningu á FB síðu Pílufélags Akraness kemur fram að félagið er orðið aðildarfélag innan Íþróttabandalags ÍA. Með aðildinni fær pílufélagið sína eigin aðstöðu og getur í framhaldinu boðið upp á æfingar fyrir börn og unglinga sem er mjög mikilvægt fyrir framtíð pílunnar á Akranesi. Meðan beðið er eftir að félagið fái sína eigin aðstöðu…Lesa meira

true

Héldu golfmót Kormáks á Glannavelli

Síðastliðinn sunnudag var haldið endurvakið golfmót Golfklúbbsins Kormáks (not open) á Glannavelli í Norðurárdal. Kormákur er frá Hvammstanga og er hópurinn sem kemur saman á vegum félagsins allur með rætur í Húnaþingi vestra. Mótið var nú haldið í áttunda skipti en hefur oftast verið spilað á Garðavelli á Akranesi. Bjarni Guðmundsson á Akranesi er fæddur…Lesa meira