
Byggðabragur þriggja sveitarfélaga rannsakaður
Bjarki Þór Grönfeldt, doktor í stjórnmálasálfræði, ásamt Vífli Karlssyni, hagfræðingi og dósent við Háskólann á Bifröst og prófessor við Háskólann á Akureyri hafa gefið út skýrslu sem ber heitið „Byggðabragur: Félagssálfræðileg rannsókn á þremur íslenskum sveitarfélögum.“ Aðdragandi rannsóknarinnar var sá að íbúakannanir hafa bent til þess að svokallaður byggðabragur geti verið gjörólíkur milli áþekkra sveitarfélaga. Með byggðabrag er átt við upp að hvaða marki íbúar eru ánægðir með sveitarfélagið, hvernig þeim líki þjónustan, þeir séu bjartsýnir á framtíðina og vilji halda áfram búsetu sinni á svæðinu. Gögn frá þremur aðliggjandi svæðum; Dalabyggð, Húnaþingi vestra og Húnabyggð, hafa ítrekað sýnt að ánægja íbúa sé meiri í Húnaþingi vestra en í Dalabyggð og Húnabyggð þrátt fyrir að ekki sé endilega augljóst hvað valdi þessum mun. Bjarki nýtti bakgrunn sinn í félagslegri sálfræði til að kafa með nýstárlegum hætti í því hvað gæti útskýrt þetta mynstur.