Hundurinn Loki og stelpurnar Sigurbjörg Ásta Helgudóttir og Freyja Sjöfn Einarsdóttir.

Fjölskylduútilega skátafélagsins Stíganda

Laugardaginn 14. ágúst sl. hélt skátafélagið Stígandi í Dalabyggð fjölskylduútilega við bæinn Á á Skarðsströnd. Skessuhorn heyrði í Katrínu Lilju Ólafsdóttur, félagsforingja skátafélagsins Stíganda. „Útilega gekk vel og aðstaðan á Á var til fyrirmyndar fyrir hópa sem vilja hafa gaman saman í gullfallegu landslagi við Breiðafjörðinn. Við fengum þokkalegt veður, töluverða rigningu inn á milli þó, en það var stilla og hlýtt. Sólin sást aðeins lítið eitt á lofti en hún skein úr brosum þátttakenda sem er aðalatriðið,“ sagði Katrín Lilja.

Fjölskylduútilega skátafélagsins Stíganda - Skessuhorn