Börn í umferðinni

Nú eru skólar að hefjast af krafti á Vesturlandi eftir sumarleyfi og margir án efa spenntir að setjast aftur á skólabekk og hitta bekkjarfélaga. Lögregla minnir ökumenn á að aka varlega, sér í lagi námunda við grunn- og leikskóla enda eru þar margir á ferli og þar á meðal nýir vegfarendur sem eru að hefja skólagöngu. Lögregla verður með aukið eftirlit í námunda við leik- og grunnskóla á næstunni. Ökumenn eru einnig hvattir til að passa upp á rétta notkun á öryggisbeltum og búnaði fyrir börn.

Börn í umferðinni - Skessuhorn