Ólavía afhenti andvirði söfnunarinnar í dag á Barnaspítala Hringsins. Ljósm. Þorkell Þorkelsson

Ólavía gefur til Barnaspítala Hringsins

Hún Ólavía Þorkelsdóttir er tíu ára Skagamær. Hún var einungis fimm ára að aldri þegar hún var greind með stjarnfrumuæxli í heila, sem er afar sjaldgæf og slæm tegund af krabbameini hjá börnum. Við tók stíf meðferð. Í kjölfar þess að sjúkdómurinn tók sig upp að nýju ári síðar gekkst hún undir nýja tegund af líftæknimeðferð sem unnið er á þróun að erlendis og sýndi hún strax miklar framfarir og náði bata. Ólavía er í raun kraftaverkabarn sem tekur sjúkdómnum sínum af miklu æðruleysi. Allt frá því hún veiktist hefur hún farið í reglubundið eftirlit lækna, undanfarin misseri á þriggja mánaða fresti. Gengst hún m.a. undir svæfingu og rannsakaður er mænuvökvi og farið í segulómun.

Ólavía ákvað sjálf fyrr í þessum mánuði að láta gott af sér leiða. Byrjaði hún að teikna og lita myndir sem hún bauð til sölu vinum, venslafólki og nágrönnum. Afraksturinn vildi hún að rynni til Barnadeildar Hringsins sem hún sjálf segir að hefði gert svo mikið fyrir sig. Verðinu á teikningunum stillti hún í hóf, eða 200 krónur fyrir mynd, en tók það þó fram að frjáls framlög í söfnunina væru einnig vel þegin. Viðtökur frá fólki voru ævintýralega góðar. Eftirspurnin eftir teikningum varð slík að foreldrar hennar byrjuðu að fjölfalda myndirnar sem Ólavía svo áritaði í tölusettum eintökum. Þótt söfnunin hefði einungis staðið yfir í tíu daga safnaði þessi tíu ára kraftaverkastúlka um 700 þúsund krónum. Í morgun fór hún svo í reglubundna skoðun og þegar hún vaknaði eftir svæfinguna afhenti hún læknum og starfsfólki á Barnaspítalanum afrakstur söfnunarinnar. Geri aðrir betur!

Söfnun Ólafíu er á reikning: 0515-26-450719, kt: 450719-0130.