Stórir og áberandi eggjasekkir hafa fundist. Ljósm. Hafró

Svartserkur breiðist út á Breiðafirði

Svartserkur er ný og framandi tegund í fjörum hér við land. Svartserkur er sæsnigill sem ber fræðiheitið Melanochlamys diomedea. Áður hafði hann einungis fundist í Kyrrahafi en eini fundarstaðurinn utan þess er hér við land. Þetta kemur fram á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar. Leiða má að því líkum að sæsnigill þessi hafi borist hingað til lands með skemmtiferðaskipum sem mörg hver eru einmitt að koma frá Kyrrahafinu.

Svartserkur breiðist út á Breiðafirði - Skessuhorn