Fréttir

true

Fá sjúkrabílaskýli áfram

Akraneskaupstaður og Heilbrigðisstofnun Vesturlands eru nú í viðræðum um að HVE fái áfram til leigu sjúkrabílaskýlið við Þjóðbraut 13a á Akranesi. Akraneskaupstaður eignaðist húsið með makaskiptasamningi við N1 árið 2021 þegar fyrirtækið fékk úthlutað athafnalóðinni við Hausthúsatorg í skiptum fyrir húsnæði Skútunnar, dekkjaverkstæðis og sjúkrabýlaskýlis. „Nú er unnið að leigusamningi við HVE til að hægt…Lesa meira

true

Víkingur enn í baráttunni eftir sigur fyrir austan

Höttur/Huginn og Víkingur Ólafsvík áttust við í 2. deild karla í knattspyrnu í gær og var leikurinn á Vilhjálmsvelli á Egilsstöðum. Gestirnir byrjuðu leikinn betur og fengu tvö ágætis færi sem þeim tókst ekki að nýta. Víkingur komst yfir síðan á 11. mínútu þegar Luis Romero Jorge fékk boltann á hægri kantinum og setti hann…Lesa meira

true

Grátlegt tap ÍA gegn Blikum

Lið ÍA og Breiðabliks mættust í 20. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í gær og voru aðstæður til knattspyrnuiðkunar á Akranesi með ágætum, völlurinn í góðu standi og veðrið bara fínt. Þetta byrjaði fjörlega því fyrsta færi leiksins kom strax á upphafsmínútunni þegar boltinn datt fyrir Hinrik Harðarson en markvörður Breiðabliks, Anton Ari Einarsson,…Lesa meira

true

Galli við hönnun gerir fólki í hjólastólum erfitt fyrir

Frágangur við gangstéttar við Borgarbraut í Borgarnesi er að mestu leyti lokið en framkvæmdir við götuna hófust 2022. Frágangur gangstétta er þó eftir við Tónlistarskóla Borgarfjarðar og við Borgarbraut 19 en í ljós kom galli í hönnun við gatnamót Böðvarsgötu og Borgarbrautar og er verið að vinna í úrlausnum vegna þess en frágangsvinna þar er…Lesa meira

true

Vinna við dreifikerfið gæti leitt til rafmagnstruflana

Komið gæti til rafmagnstruflana á Snæfellsnesi næstu daga, en svæðið verður í eyjakeyrslu frá kl. 07:30 til 18:30 mánudag til föstudags á tímabilinu 27. ágúst til 12. september vegna vegna vinnu Landsnes á Vegamótalínu VE1. Í dag verður rafmagnslaust frá Fróðá að Grundarfirði frá kl 13:00 til kl 17:00 vegna vinnu við dreifikerfið. Mögulega kemur…Lesa meira

true

Mikilvæg skilaboð til ferðafólks vegna eldgossins (english below)

Að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarnardeildar og Lögreglunnar á Suðurnesjum biðlar Ferðamálastofa til ferðaþjónustuaðila og annarra sem eru í samskiptum við erlenda ferðamenn að upplýsa viðskiptavini sína um að eldgosið á Reykjanesi er ekki aðgengilegt fyrir ferðafólk og þangað ætti enginn að reyna að komast. Viðbragðsaðilar á svæðinu hafa ítrekað lent í vandræðum vegna fólks sem ekki…Lesa meira

true

Háskólinn á Bifröst með starfsstöð á Hvanneyri

Háskólinn á Bifröst hefur komið sér upp starfsstöð á Hvanneyri og mun nýta sér aðstöðu Landbúnaðarháskólans til kennslu með sérstökum samningi þar um. Eins og kunnugt er hefur ekki verið kennt á Bifröst síðustu misserin sökum þess að mygla var greind í skólahúsinu. Nýverið voru nýnemadagar Háskólans á Bifröst haldnir. Nýnemadagar grunn- og meistaranema skólans…Lesa meira

true

Lásu samtals yfir sjötíu þúsund blaðsíður

Sumarlestur Bókasafns Akraness í sumar lauk á dögunum og var haldið upp á það með skemmtilegri lokahátíð. Krakkarnir byrjuðu á að taka þátt í ýmsum þrautum og leikjum en svo komu óvæntir gestir í heimsókn. Þeir voru reyndar svo stórir að þeir þurftu að koma inn um neyðarinnganginn. Þetta voru þau Tufti og tröllabarn og…Lesa meira

true

Breyting á útivistartíma barna og unglinga

Í byrjun september breytist útivistartími barna og unglinga yfir í vetrartíma eða frá 1. september til 1. maí. Börn 12 ára og yngri mega lengst vera úti til klukkan 20 á kvöldin og börn 13 til 16 ára mega lengst vera úti til klukkan 22. Aldursmörk miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag sem þýðir að…Lesa meira

true

Leita kaupanda að lóð fyrir Samfélagsmiðstöð

Velferðarrráð Akraneskaupstaðar undirbýr nú þarfagreiningu og fyrirkomulag húsnæðis fyrir nýja Samfélagsmiðstöð á lóðinni Dalbraut 8, þar sem Veitur voru síðast til húsa í byggingu sem nú er búið að rífa. Í Samfélagsmiðstöðinni verður m.a. hæfing Fjöliðjunnar, HVER og Þorpið æskulýðsmiðstöð. Áætlun bæjarstjórnar er að byggingarréttur verði boðinn út á lóðinni og kaupandi taki að sér…Lesa meira