Horft til vesturs yfir svæðið þar sem fyrirhuguð bygging á að rísa. Ljósm. mm

Leita kaupanda að lóð fyrir Samfélagsmiðstöð

Velferðarrráð Akraneskaupstaðar undirbýr nú þarfagreiningu og fyrirkomulag húsnæðis fyrir nýja Samfélagsmiðstöð á lóðinni Dalbraut 8, þar sem Veitur voru síðast til húsa í byggingu sem nú er búið að rífa. Í Samfélagsmiðstöðinni verður m.a. hæfing Fjöliðjunnar, HVER og Þorpið æskulýðsmiðstöð. Áætlun bæjarstjórnar er að byggingarréttur verði boðinn út á lóðinni og kaupandi taki að sér byggingu 4-5 hæða húss samkvæmt skipulagi. Á jarðhæð þess verður Samfélagsmiðstöðin til húsa en íbúðir á efri hæðum. „Þetta er sambærilegt fyrirkomulag og er á Dalbraut 4 þar sem þjónustumiðstöð eldri borgara er til húsa á jarðhæð en íbúðir á efri hæðum,“ segir Haraldur Benediktsson bæjarstjóri í samtali við Skessuhorn.

Leita kaupanda að lóð fyrir Samfélagsmiðstöð - Skessuhorn