Fréttir

true

Ungmennamót Norræna félagsins verður haldið á Akranesi

Dagana 22.-28. september verður haldið ungmennamót á Akranesi. Þátttakendur eru á aldrinum 15-16 ára og koma frá vinabæjum Akraness; Närpes í Finnlandi, Västervik í Svíþjóð og Langeskov í Danmörku. Alls eru um tólf ungmenni að ræða og koma fjögur frá hverju landi. Markmið mótsins er að efla kynni ungmenna á Norðurlöndunum. Norræna félagið sér um…Lesa meira

true

Kaffisala Ölvers er í dag

Árleg kaffisala sumarbúða KFUM og KFUK í Ölveri við Hafnarfjall, er í dag, sunnudaginn 25. ágúst frá klukkan 13-17. Sumarbúðastarf hófst í Ölveri fyrir um sjö áratugum en 12 fyrstu árin var það í Skátafelli undir Akrafjalli. „Allir eru hjartanlega velkomnir í kaffisöluna og hvattir til að mæta, gera sér glaðan dag í fallegu umhverfi…Lesa meira

true

Varnaræfingin Norður-Víkingur hefst á morgun

Varnaræfingin Norður-Víkingur fer fram á Íslandi og hafsvæðinu kringum landið dagana 26. ágúst til 3. september. „Megintilgangur æfingarinnar er að æfa varnir mikilvægra mannvirkja, varnir sjóleiða umhverfis Ísland, leit og björgun, gistiríkjastuðning og samhæfingu stofnana sem að verkefninu koma hér á landi. Um er að ræða reglubundna tvíhliða varnaræfingu Íslands og Bandaríkjanna með þátttöku fleiri…Lesa meira

true

Úr sarpi: „Mér þykir vænt um þetta hús“

Viðtal við Ísólf Haraldsson framkvæmdastjóra Bíóhallarinnar á Akranesi úr Skessuhorni frá árinu 2014 Menningarlífið á Akranesi hefur sjaldan verið í jafn miklum blóma og nú. Stóran þátt í því eiga Vinir Hallarinnar, sem staðið hafa fyrir fjölbreyttu menningar- og listalífi í Bíóhöllinni á Akranesi og víðar. Ísólfur Haraldsson er í forsvari fyrir Vini Hallarinnar en…Lesa meira

true

Úr sarpi: Hættir kennslu eftir 36 ára starf við Varmalandsskóla

Viðtal við Ingibjörgu Daníelsdóttur kennara og bónda á Fróðastöðum í Hvítársíðu sem birtist í Skessuhorni árið 2014 Nú þegar nemendur og starfsfólk Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi í Borgarfirði fara í jólafrí kveður einn af kennurum skólans eftir að hafa kennt þar frá haustinu 1978. Sá kennari sem um ræðir er Ingibjörg Daníelsdóttir á Fróðastöðum í…Lesa meira

true

Lokafrágangur eftir við nýtt listaverk Errós í Ólafsvík

Í sumar hefur í Ólafsvík verið unnið að uppsetningu listaverks eftir listamanninn Erró, Guðmund Guðmundsson, sem þar fæddist 19. júlí 1932. Hafa verktakar í sumar unnið við að setja verkið upp með forskrift frá listamanninum á Sáinu, framan við gamla Pakkhúsið. Að sögn Kristins Jónassonar bæjarstjóra gefur Erró Snæfellsbæ verkið í tilefni 30 ára afmælis…Lesa meira

true

Útselsstofninn talinn vera svipað stór og síðustu ár

Stærð íslenska útselsstofnsins hefur verið metin reglulega af Hafrannsóknastofnun frá 1982 með talningum á kópum að hausti. Í talningunni árið 2022 var heildar kópaframleiðslan metin vera 1.551 kópur. Mikilvægasta kæpingarsvæðið var líkt og áður Breiðafjörður með um 62% af kópunum. Út frá þessari kópatalningu er stofnstærð útsels árið 2022 metin um 6.700 dýr og miðað…Lesa meira

true

Árný Huld er íbúi ársins í Reykhólahreppi

Reykhóladagar voru haldnir hátíðlegir um síðustu helgi. Gekk hátíðin vel þrátt fyrir að veðrið hafi gert skipuleggjendum og gestum hátíðarinnar nokkra skráveifu. Samkvæmt Emblu Dögg Bachmann, skipuleggjenda hátíðarinnar, var mikill fjöldi gesta og íbúa sem fylgdust með Herberti Guðmundssyni og syni hans taka lagið. Fjölmargir tónleikar voru haldnir, þaraboltinn tókst vel ásamt fleiri viðburðum. Hefð…Lesa meira

true

Eiríkur mun sjá um viðgerðir á grunnskólanum

Tvö tilboð bárust í verklegar framkvæmdir við Grunnskólann í Borgarnesi sem auglýstar voru fyrr á árinu. Um er að ræða uppbyggingu innanhúss á miðálmu skólans sem fyrst var tekin í notkun árið 1992. Tvö tilboð bárust. Land og Verk ehf bauð 154 milljónir króna en tilboð frá Eiríki J Ingólfssyni ehf. hljóðaði upp á 116,7…Lesa meira

true

Forgangsröðun í vegaframkvæmdum og fjarskiptamálum hjá Dalabyggð

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar sem haldinn var 15. ágúst sl. voru staðfestar tvær skýrslur er varða innviði í sveitarfélaginu. Annars vegar er um að ræða uppfærslu á forgangsröðun vegaframkvæmda í sveitarfélaginu sem unnin var 2023 og hins vegar nýja forgangsröðun í fjarskiptamálum. Báðum forgangsröðunum er ætlað að vera lifandi plagg sem tekur breytingum eftir því…Lesa meira