Starfsfólk Vegagerðarinnar að setja í holur í Miðdölum. Ljósm. hig

Forgangsröðun í vegaframkvæmdum og fjarskiptamálum hjá Dalabyggð

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar sem haldinn var 15. ágúst sl. voru staðfestar tvær skýrslur er varða innviði í sveitarfélaginu. Annars vegar er um að ræða uppfærslu á forgangsröðun vegaframkvæmda í sveitarfélaginu sem unnin var 2023 og hins vegar nýja forgangsröðun í fjarskiptamálum. Báðum forgangsröðunum er ætlað að vera lifandi plagg sem tekur breytingum eftir því sem vinnst á áherslum þeirra. Í báðum skýrslum er að finna forgangsröðun sveitarfélagsins á yfirstandandi framkvæmdum, næstu framkvæmdum og aðrar áherslur.

Forgangsröðun í vegaframkvæmdum og fjarskiptamálum hjá Dalabyggð - Skessuhorn