
Mynd sem var tekin á síðasta ungmennamóti á Akranesi árið 2014.
Ungmennamót Norræna félagsins verður haldið á Akranesi
Dagana 22.-28. september verður haldið ungmennamót á Akranesi. Þátttakendur eru á aldrinum 15-16 ára og koma frá vinabæjum Akraness; Närpes í Finnlandi, Västervik í Svíþjóð og Langeskov í Danmörku. Alls eru um tólf ungmenni að ræða og koma fjögur frá hverju landi.
Markmið mótsins er að efla kynni ungmenna á Norðurlöndunum. Norræna félagið sér um alla skipulagningu og dagskrá þessa daga en ungmennin gista í heimahúsum. Norræna félagið er að leita að heimilum og fjölskyldum sem væru tilbúin að hýsa ungmennin og veita þeim félagsskap þessa daga.
Nánari upplýsingar veita þær Katrín Leifsdóttir í síma 861-1404 og Steinunn Guðmundsdóttir í síma 897-6209.