Fréttir

true

Minniháttar breyting á skipulagi Kirkjubrautar 39

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Akraneskaupstaðar nýverið var lagt til við bæjarstjórn að samþykkja minniháttar breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Kirkjubraut 39, gömlu Fóló lóðinni. Lögð var fyrir greinargerð skipulagsfulltrúa vegna athugasemda sem bárust vegna breytinganna á skipulagsferlinu. Bæjarráð samþykkti svo á fundi sínum 15. ágúst sl., í umboði bæjarstjórnar, deiliskipulagsbreytingu vegna Krikjubrautar 39 og…Lesa meira

true

Jafnt hjá ÍA og Aftureldingu í hörkuleik

ÍA og Afturelding áttust við í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn spilaður inni í blíðunni í Akraneshöllinni. Fyrir viðureignina munaði einu stigi á liðunum og ekki mikið undir nema stoltið því bæði lið voru búin að missa af lestinni í toppbaráttunni. Fyrsta mark leiksins kom strax á þriðju mínútu þegar gestirnir…Lesa meira

true

Listaverkið Gleði-Framtíð vígt í Ólafsvík

Kvenfélag Ólafsvíkur vígði í gær útilistaverkið Gleði-Framtíð eftir Sigurð Guðmundsson listamann við Gilið, skammt frá leikskólanum Krílakoti. Verkið er sett upp til að minnast þess að félagið stofnaði og rak fyrsta leikskólann í Ólafsvík. Verk Sigurðar er einstaklega skemmtilegt og litríkt en það er hannað með börn í huga. Það var því vel til fundið…Lesa meira

true

Umsækjendur um þátttöku í forvali um byggingu fjölnota íþróttahúss

Borgarbyggð auglýsti forval fyrir alútboð á byggingu nýs fjölnota íþróttahúss í Borgarnesi í byrjun júlí síðastliðins. Með umsókn gátu verktakafyrirtæki sótt um þátttökurétt í lokuðu alútboði vegna hönnunar og byggingar mannvirkisins. Umsóknarfrestur vegna forvalsins rann út 20. ágúst síðastliðinn og óskuðu sex fyrirtæki eftir þátttöku. Þau eru: Sjammi, Alverk, Eykt, E. Sigurðsson, Þelamörk og Ístak.…Lesa meira

true

Varað við hvassviðri í dag og úrhelli fyrir norðan

Nú er myndarleg lægð búin að hreiðra um sig norðan við landið og fylgir henni bæði úrkoma og hvassviðri. Viðvörun er í gildi við nær alla norðurströnd landsins vegna úrkomu og því spáð að sólarhringsúrkoma gæti farið í 200 mm. Talsverð eða mikil rigning verður norðan til á Vestfjörðum og Norðurlandi. Vatnsborð í ám og…Lesa meira

true

Fimmta eldgosið á þessu ári hófst í gærkvöldi

Laust fyrir klukkan hálf tíu í gærkvöldi hófst eldgos á Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesskaga. Þetta er fimmta eldgosið á þessu ári, það sjötta á þessum slóðum og sjöunda kvikuhlaupið í þessum atburði jarðhræringanna. Alls hefur nú gosið níu sinnum síðan jarðhræringar hófust á Reykjanesskaga fyrir þremur árum, eftir 800 ára hvíld eldstöðvakerfisins. Gosið byrjaði í kjölfar…Lesa meira

true

Fjórðungs aukning útflutningsverðmæta sjávarafurða

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 28,5 milljörðum króna í júlí samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum um vöruviðskipti sem Hagstofan birti á dögunum. Það er nokkuð myndarleg aukning frá júlí í fyrra, eða sem nemur um 26% í krónum talið. Þar sem gengi krónunnar var um 2% veikara nú í júlí en í sama mánuði í fyrra er aukningin aðeins…Lesa meira

true

Gera nótina klára fyrir vertíðina

Það styttist óðum í nýtt fiskveiðitímabil og sjómenn bíða spenntir eftir að 1. september gangi í garð. Eftir langt sumarfrí er spenningurinn enn meiri enda menn fljótir að veiða þann takmarkaða kvóta sem til skiptanna er. Á myndinni eru skipsverjar á dragnótarbátnum Guðmundi Jenssyni SH í Ólafsvík að yfirfara nótina og hafa hana í sem…Lesa meira

true

Starfshópur skipaður um uppbyggingu á Breið

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar 15. ágúst síðastliðinn var lagt fram erindi frá Brimi hf. vegna væntanlegrar uppbyggingar á Breiðinni, en fyrirtækið er eins og kunnugt er eigandi stærsta hluta svæðisins. Málinu fylgdu úr hlaði þeir Guðmundur Kristjánsson og Guðmundur Jóhann Jónsson frá Brimi hf., sem sátu fund bæjarráðs undir þessum lið. Samþykkt var að stofnaður…Lesa meira

true

Bæjarsjóður tapaði 500 milljónum á fyrri helmingi ársins

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar 15. ágúst síðastliðinn var lagt fram sex mánaða milliuppgjör fyrir bæjarsjóð. Í bókun byggðarráðs segir: „Rekstrarniðurstaða samstæðu Akraneskaupstaðar, þ.e. A- og B- hluta, var neikvæð um samtals 497,8 m.kr. fyrir fyrstu sex mánuði ársins, en áætlun tímabilsins gerði ráð fyrir neikvæðri rekstrarniðurstöðu að fjárhæð 434 m.kr.“ Afkoman er því 64 milljónum…Lesa meira