
Minniháttar breyting á skipulagi Kirkjubrautar 39
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Akraneskaupstaðar nýverið var lagt til við bæjarstjórn að samþykkja minniháttar breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Kirkjubraut 39, gömlu Fóló lóðinni. Lögð var fyrir greinargerð skipulagsfulltrúa vegna athugasemda sem bárust vegna breytinganna á skipulagsferlinu. Bæjarráð samþykkti svo á fundi sínum 15. ágúst sl., í umboði bæjarstjórnar, deiliskipulagsbreytingu vegna Krikjubrautar 39 og að breytingin verði send Skipulagsstofnun og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda. „Bæjarráð áréttar að framkvæmdir hefjist sem fyrst og að frágangur lóðar sé í samræmi við tilmæli byggingarfulltrúa þar til framkvæmdir hefjast samkvæmt reglum um vinnuferil byggingarfulltrúa Akraness til beitingu dagsekta.“