
Hér er búið að setja teikningu af fyrirhuguðu fjölnota íþróttahúsi inn í ljósmynd af svæðinu. Mynd: Borgarbyggð
Umsækjendur um þátttöku í forvali um byggingu fjölnota íþróttahúss
Borgarbyggð auglýsti forval fyrir alútboð á byggingu nýs fjölnota íþróttahúss í Borgarnesi í byrjun júlí síðastliðins. Með umsókn gátu verktakafyrirtæki sótt um þátttökurétt í lokuðu alútboði vegna hönnunar og byggingar mannvirkisins. Umsóknarfrestur vegna forvalsins rann út 20. ágúst síðastliðinn og óskuðu sex fyrirtæki eftir þátttöku. Þau eru: Sjammi, Alverk, Eykt, E. Sigurðsson, Þelamörk og Ístak.