
Leikskólabörn settu líflegan svip á vígsluathöfnina og sungu tvö lög. Ljósmyndir: AF
Listaverkið Gleði-Framtíð vígt í Ólafsvík
Kvenfélag Ólafsvíkur vígði í gær útilistaverkið Gleði-Framtíð eftir Sigurð Guðmundsson listamann við Gilið, skammt frá leikskólanum Krílakoti. Verkið er sett upp til að minnast þess að félagið stofnaði og rak fyrsta leikskólann í Ólafsvík. Verk Sigurðar er einstaklega skemmtilegt og litríkt en það er hannað með börn í huga. Það var því vel til fundið að leikskólabörn tóku virkan þátt í vígslu þess.