Varað við hvassviðri í dag og úrhelli fyrir norðan

Nú er myndarleg lægð búin að hreiðra um sig norðan við landið og fylgir henni bæði úrkoma og hvassviðri. Viðvörun er í gildi við nær alla norðurströnd landsins vegna úrkomu og því spáð að sólarhringsúrkoma gæti farið í 200 mm. Talsverð eða mikil rigning verður norðan til á Vestfjörðum og Norðurlandi. Vatnsborð í ám og lækjum mun vaxa talsvert og vöð og árfarvegir geta því orðið varasöm. Einnig aukast líkur á aurskriðum og grjóthruni. Ferðamenn ættu að forðast brattar fjallshlíðar.

Vegna hvassviðris hefur gul viðvörun tekið gildi fyrir Faxaflóasvæðið og gildir hún til klukkan 22 í kvöld. Við Breiðafjörð er sambærileg viðvörun í gildi til kl. 2 í nótt. Hér um vestanvert landið nær vindur hámarki með norðanáttinni eftir hádegi og þar til síðdegis. Sviptivindar verða hvað mest áberandi á sunnanverðu Snæfellsnesi og hviður gætu þar náð 35-40 m/s.

Varað við hvassviðri í dag og úrhelli fyrir norðan - Skessuhorn