Fréttir

true

Hasar og þrjú rauð spjöld í jafntefli ÍH og Kára

Það var aldeilis fjörið í knattspyrnuhöllinni Skessunni í Hafnarfirði í gærkvöldi þegar lið ÍH og Kára áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu. Það byrjaði strax á þriðju mínútu leiksins þegar Gísli Þröstur Kristjánsson skoraði fyrir ÍH en Sigurður Hrannar Þorsteinsson var snöggur til þegar hann jafnaði metin fyrir Kára aðeins tveimur mínútum síðar.…Lesa meira

true

Sætur sigur hjá Víkingi gegn Haukum

Víkingur Ólafsvík og Haukar tókust á í 18. umferð 2. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn á Ólafsvíkurvelli. Þegar liðin mættust fyrr í sumar vann Víkingur öruggan 3-0 sigur en fyrir leik munaði aðeins þremur stigum á liðunum í efri hluta deildarinnar. Gary Martin kom Víkingi yfir strax á 2. mínútu en…Lesa meira

true

Vinnur á hverjum einasta degi til að verða betri kokkur

Rætt við Elmar Daða Sævarsson, yfirkokk á Hótel Varmalandi og rekstraraðila mötuneytis Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri Matsalurinn í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri var nánast orðinn tómur eftir erilsamt hádegi. Blaðamaður Skessuhorns nær yfirkokkinum Elmari Daða Sævarssyni í létt spjall um starfsemina, ferilinn og upprunann. „Ég er ættaður úr Ólafsvík og Sandgerði en hef ávallt búið í Reykjavík,“…Lesa meira

true

Tekur bát sinn í gegn fyrir næstu strandveiðivertíð

Sævar Örn Sveinbjörnsson trillukarl í Ólafsvík lætur sjaldan verk úr hendi falla. Síðan strandveiðar voru stöðvaðar í sumar hefur hann unnið í bát sínum, Hrefnu SH. Báturinn er af gerðinni Sómi 800 en Sævar keypti hann í vor og réri á honum í sumar. Sævar tók gömlu vélina úr bátnum og hefur fjárfest í öflugri…Lesa meira

true

Minningarsteinn um séra Hallgrím var afhjúpaður í Saurbæ

Síðdegis í gær fór fram athöfn í Hallgrímskirkju í Saurbæ og í kirkjugarðinum. Í ljósi tíðarfarsins í sumar voru gestir einstaklega heppnir því þennan dag var hlýtt og sólríkt á Hvalfjarðarströndinni. Blásið var til þessarar athafnar í tilefni af 350. ártíð sálmaskáldsins Hallgríms Péturssonar. Afhjúpaður var minningarsteinn um Hallgrím og Guðríði Símonardóttur eiginkonu hans á…Lesa meira

true

Afmælisár í Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði segir að 163 nemendur séu búnir að skrá sig til náms að þessu sinni. Af þeim eru 85 í fjarnámi, í Framhaldsdeild eru sjö nemendur og aðrir nemendur eru í staðnámi í Grundarfirði og þar af 31 nýnemi. „Eina breytingin á starfsmannahaldi var sú að einn starfsmaður lauk…Lesa meira

true

Kvikan er ný tegund bókasafns í skóla

Púlsinn tekinn hjá skólameistara Menntaskóla Borgarfjarðar Skessuhorn hafði samband við Braga Þór Svavarsson skólameistara Menntaskóla Borgarfjarðar. Hann segir að 16. ágúst hafi 203 nemendur verið skráðir í nám við skólann og  57 nýnemar væru væntanlegir. Um er að ræða metfjölda í skráningum og mikil gleði yfir þessari frábæru aðsókn. Um 30% nemenda eru skráðir í…Lesa meira

true

525 nemendur hefja nám í FVA í haust

Steinunn Inga Óttarsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, segir í samtali við Skessuhorn að skólinn sé nú að fara að taka á móti 525 nemendum á þessu skólaári; 427 nemendum í dagskóla og 98 nemendum í dreifnámi. „Við erum að fara að taka á móti 120 nýnemum sem koma beint úr 10. bekk en í…Lesa meira

true

Tók að sér matsveinsstarfið um borð 15 ára

Hrannar Kjartansson er 15 ára Ólafsvíkingur sem skellti sér á sjóinn í gær með feðgunum Magga Emma og Jóni Þór á línubátnum Rán SH. Hrannar er kominn af sjómannsfjölskyldu og því ekki ókunnur lífinu til sjós. Blíðuveður var og því örlaði ekki fyrir sjóveiki. Jón Þór sagði í samtali við fréttaritara að Hrannar hefði tekið…Lesa meira