Ein af fyrstu fréttaljósmyndunum af gosinu tekin úr þyrlu Gæslunnar í gærkvöldi. Ljósm. Veðurstofan

Fimmta eldgosið á þessu ári hófst í gærkvöldi

Laust fyrir klukkan hálf tíu í gærkvöldi hófst eldgos á Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesskaga. Þetta er fimmta eldgosið á þessu ári, það sjötta á þessum slóðum og sjöunda kvikuhlaupið í þessum atburði jarðhræringanna. Alls hefur nú gosið níu sinnum síðan jarðhræringar hófust á Reykjanesskaga fyrir þremur árum, eftir 800 ára hvíld eldstöðvakerfisins.

Gosið byrjaði í kjölfar öflugrar jarðskjálftahrinu sem hófst um klukkustund áður. Strax í upphafi goss var það kröftugt og gaus á um fjögurra kílómetra langri sprungu þegar mest var. Mikil kvikusöfnun hafði verið og því var fyrir fram búist við krafti í gosinu í fyrstu. Ný gossprunga opnaðist svo í nótt við norðurenda þeirrar fyrri en virkni er áfram mest nyrst á fyrstu sprungunni. Mjög dró úr skjálftavirkni eftir að nýja sprungan opnaðist. Hraun rennur til austurs og norðurs, í átt að Litla-Skógfelli. Rýming Grindavíkur og Blá lónsins gekk vel og enginn var í hættu.

Vegna þess hversu norðarlega gýs rennur hraun ekki í átt að Grindavík og hraunrennslið virtist í nótt hafa stöðvast um 200 til 300 metra frá Grindavíkurvegi.

Fimmta eldgosið á þessu ári hófst í gærkvöldi - Skessuhorn