Meginhluti starfsemi bæjarskrifstofanna er nú við Dalbraut 4. Ljósm. vaks

Bæjarsjóður tapaði 500 milljónum á fyrri helmingi ársins

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar 15. ágúst síðastliðinn var lagt fram sex mánaða milliuppgjör fyrir bæjarsjóð. Í bókun byggðarráðs segir: „Rekstrarniðurstaða samstæðu Akraneskaupstaðar, þ.e. A- og B- hluta, var neikvæð um samtals 497,8 m.kr. fyrir fyrstu sex mánuði ársins, en áætlun tímabilsins gerði ráð fyrir neikvæðri rekstrarniðurstöðu að fjárhæð 434 m.kr.“ Afkoman er því 64 milljónum króna lakari en áætlun hafði gert ráð fyrir. Þá segir í bókun bæjarráðs að framlegð tímabilsins, eða EBITDA, hafi verið neikvæð um 140,2 m.kr. og nemur framlegðarhlutfallið því -2,25% á fyrstu sex mánuðum ársins. Loks segir að sex mánaða uppgjör Akraneskaupstaðar sýni þungan rekstur. „Bæjarráð áréttar til stjórnenda að finna leiðir til að mæta stöðunni og hægja á útgjaldaaukningu.“

Bæjarsjóður tapaði 500 milljónum á fyrri helmingi ársins - Skessuhorn