Hressar stúlkur í sumarbúðunum Ölveri. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

Kaffisala Ölvers er í dag

Árleg kaffisala sumarbúða KFUM og KFUK í Ölveri við Hafnarfjall, er í dag, sunnudaginn 25. ágúst frá klukkan 13-17. Sumarbúðastarf hófst í Ölveri fyrir um sjö áratugum en 12 fyrstu árin var það í Skátafelli undir Akrafjalli.

„Allir eru hjartanlega velkomnir í kaffisöluna og hvattir til að mæta, gera sér glaðan dag í fallegu umhverfi Ölvers, gæða sér á ljúffengum veitingum og styðja við sumarbúðirnar um leið,“ segir í tilkynningu.

Kaffisala Ölvers er í dag - Skessuhorn