Frá Norður-Víkingi árið 2022, en þá var mikið umleikis í Hvalfirði.

Varnaræfingin Norður-Víkingur hefst á morgun

Varnaræfingin Norður-Víkingur fer fram á Íslandi og hafsvæðinu kringum landið dagana 26. ágúst til 3. september. „Megintilgangur æfingarinnar er að æfa varnir mikilvægra mannvirkja, varnir sjóleiða umhverfis Ísland, leit og björgun, gistiríkjastuðning og samhæfingu stofnana sem að verkefninu koma hér á landi. Um er að ræða reglubundna tvíhliða varnaræfingu Íslands og Bandaríkjanna með þátttöku fleiri vina- og bandalagsríkja,“ segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Varnaræfingin Norður-Víkingur hefst á morgun - Skessuhorn