
Tufti og tröllabarnið vöktu athygli hjá krökkunum. Ljósm. BA
Lásu samtals yfir sjötíu þúsund blaðsíður
Sumarlestur Bókasafns Akraness í sumar lauk á dögunum og var haldið upp á það með skemmtilegri lokahátíð. Krakkarnir byrjuðu á að taka þátt í ýmsum þrautum og leikjum en svo komu óvæntir gestir í heimsókn. Þeir voru reyndar svo stórir að þeir þurftu að koma inn um neyðarinnganginn. Þetta voru þau Tufti og tröllabarn og sáu þau um að draga úr happdrættinu en vinningshafar í því voru Rósmarý Þórdís Pálmadóttir, Telma Björk Magnúsdóttir, Natalía Jónsdóttir, Bjarnfríður Helga Þorsteinsdóttir, Kristján Sindri Ívarsson og Oliver Bjarki Oliversson.