Margrét Jónsdóttir Njarðvík setti Háskólagátt HB föstudaginn 9. ágúst sl. og hringdi inn nýja skólaárið. Ljósm. HB

Háskólinn á Bifröst með starfsstöð á Hvanneyri

Háskólinn á Bifröst hefur komið sér upp starfsstöð á Hvanneyri og mun nýta sér aðstöðu Landbúnaðarháskólans til kennslu með sérstökum samningi þar um. Eins og kunnugt er hefur ekki verið kennt á Bifröst síðustu misserin sökum þess að mygla var greind í skólahúsinu. Nýverið voru nýnemadagar Háskólans á Bifröst haldnir. Nýnemadagar grunn- og meistaranema skólans fóru fram í Hjálmakletti í Borgarnesi, en við Háskólagátt Háskólans á Bifröst hittust nýnemar í húsnæði Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri.

Háskólinn á Bifröst með starfsstöð á Hvanneyri - Skessuhorn