Gatnamót Böðvarsgötu og Borgarbrautar í Borgarnesi. Ljósm. hig

Galli við hönnun gerir fólki í hjólastólum erfitt fyrir

Frágangur við gangstéttar við Borgarbraut í Borgarnesi er að mestu leyti lokið en framkvæmdir við götuna hófust 2022. Frágangur gangstétta er þó eftir við Tónlistarskóla Borgarfjarðar og við Borgarbraut 19 en í ljós kom galli í hönnun við gatnamót Böðvarsgötu og Borgarbrautar og er verið að vinna í úrlausnum vegna þess en frágangsvinna þar er í biðstöðu. Yfir Borgarbrautina á að koma hellulögð gönguþverun, sambærileg þverun og er við Kveldúlfsvöll. Þar til úrbætur hafa verið gerðar verður erfitt fyrir fólk með kerrur og í hjólastólum að komast leiðar sinnar.

Galli við hönnun gerir fólki í hjólastólum erfitt fyrir - Skessuhorn