Fjölgun íbúa og íbúða í nokkrum sveitarfélögum frá 2018 til 2024. Skjáskot: Hms.is

Íbúðum fjölgar ekki allsstaðar í takti við íbúafjölgun

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur gefið út skýrslu fyrir ágúst 2024 um umsvif á fasteignamarkaði hér á landi. Fasteignamarkaður var líflegur í nýliðnum ársfjórðungi og hafa kaupsamningar ekki verið fleiri á öðrum ársfjórðungi að undanskildum árunum 2007 og 2021. Í júlí kom 301 nýbyggð íbúð inn á markaðinn á landinu öllu. Um helmingur þeirra er á höfuðborgarsvæðinu og um þriðjungur í nágrannasveitarfélögum þess. Samtals hafa 1.869 nýbyggðar íbúðir komið inn á markað það sem af er ári.

Íbúðum fjölgar ekki allsstaðar í takti við íbúafjölgun - Skessuhorn