Ragnheiður rektor býður nýnema velkomna í LbhÍ á þessu skólaári. Ljósm. Rósa Björk.

Svipaður fjöldi nemenda við LbhÍ en fækkun í bændadeild

Við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri eru um 400 nemendur skráðir í hefðbundið nám sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Umsóknum um nám í búfræði fækkaði talsvert milli ára, eða úr 62 í 21. Skessuhorn heyrði hljóðið í Ragnheiði I. Þórarinsdóttur rektor LbhÍ og ræddi um skólaárið sem nú væri hafið. „Nemendafjöldi við Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands var eitt þúsund síðastliðið ár og þar eru um 400 nemendur sem sækja nám og námskeið sem metin eru til eininga á framhaldsskólastigi og háskólastigi. Í ár er nemendafjöldinn þegar kominn í 600 manns hjá Endurmenntun LbhÍ og þar af hafa rúmlega 450 verið í einingabæru námi,“ segir Ragnheiður. Fjöldi starfsmanna við Landbúnaðarháskóla Íslands er um eitt hundrað og auk þess eru fjölmargir stundakennarar sem koma að kennslu.

Svipaður fjöldi nemenda við LbhÍ en fækkun í bændadeild - Skessuhorn