Fréttir

true

Spilar í hundrað kirkjum í hundrað póstnúmerum

Tónlistarmaðurinn Mugison er nú á ferð um landið þar sem hann er í tónleika maraþoni og stefnir á að spila í hundrað kirkjum í hundrað póstnúmerum á innan við ári. Í tilkynningu frá Mugison kemur fram að hann hafi lengi verið heillaður af öllum þessum kirkjum. „Þær eru út um allt – í sveitunum, bæjum…Lesa meira

true

Slæmt tap hjá Reyni frá Hellissandi

Reynir frá Hellissandi mátti þola stórt tap þegar liðið heimsótti KFR, Knattspyrnufélag Rangæinga á Hvolsvelli, á laugardaginn. Spilað var á SS-vellinum á Hvolsvelli en leikurinn var sá næstsíðasti á leiktíðinni hjá Reyni. KFR náðu fljótlega undirtökum í leiknum og náðu þeir forystu strax á 8. mínútu leiksins þegar Bjarni Þorvaldsson skoraði. Á 13. mínútu varð…Lesa meira

true

Afmælishátíð Danskra daga gekk glimrandi vel

Bæjarhátíðin Danskir dagar var haldin helgina 16.-18. ágúst í Stykkishólmi, en hátíðin var fyrst haldin árið 1994. Dagskráin var vegleg í ár og var fjölmargt í boði fyrir börn á öllum aldri. Mikill fjöldi brottfluttra Hólmara lét sjá sig. Hverfagrillin á föstudeginum voru mjög vel sótt. Halla Tómasdóttir forseti Íslands ávarpaði gesti á hafnartónleikum úti…Lesa meira

true

Fjölmenni mætti á Beint frá býli daginn á Grímsstöðum – myndasyrpa

Í gær var Beint frá býli dagurinn haldinn á nokkrum stöðum á landinu. Þessi nýbreytni var tekin upp á síðasta ári en þá var gestum á Vesturlandi boðið að Háafelli í Hvítársíðu. Nú var röðin komin að Grímsstöðum í Reykholtsdal en Jóhanna Sjöfn Guðmundsdóttir er formaður stjórnar Beint frá býli. Á Grímsstöðum er rekið sauðfjár-…Lesa meira

true

Þyrla sótti veikan einstakling af skemmtiferðaskipi

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í morgun einstakling sem læknir hafði úrskurðað að þyrfti að komast sem fyrst á sjúkrastofnun. Var það farþegi úr skemmtiferðaskipinu MS Marina sem nú er í Grundarfirði. Lenti þyrlan á Norðurgarði og fór í loftið að nýju um klukkan 11:15.Lesa meira

true

Óvænt stórtap Víkings gegn liði KF

Knattspyrnufélag Fjallabyggðar og Víkingur Ólafsvík mættust á Ólafsfjarðarvelli í 17. umferð 2. deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn. Leikurinn var ansi mikilvægur fyrir bæði lið sem voru á sitt hvorum enda deildarinnar. Víkingur gat með sigri komist í 2. sætið en KF var í næstneðsta sætinu og fjórum stigum frá öruggu sæti. Víkingur hefur ekki…Lesa meira

true

Flekkudalsá hefur gefið 130 laxa

„Við vorum að koma úr Flekkudalsá í Dölum og fékk hollið tvo laxa. Það er mikið af fiski allavega í Jónsbakka, en hann er tregur. Þar hefur veiðst vel í sumar, yfir 40 laxar í hylnum,“ sagði Gréta Björg Jakobsdóttir, en hún og eiginmaður hennar Svanþór Laxdal fengu báða laxana í Jónsbakka. „Minn lax var…Lesa meira

true

Fimmti sigur Kára í röð í þriðju deildinni

Kári og KV mættust í 3. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var leikið í Akraneshöllinni. Fyrir viðureignina var Kári í toppsæti deildarinnar með 39 stig eftir 16 leiki og hafði unnið síðustu fjóra leiki með markatölunni 12-0 á meðan KV var í 10. sæti með 15 stig og í harðri botnbaráttu. Káramenn náðu…Lesa meira

true

Stefnt að opnun nýs gagnagrunns um skólakerfið fyrir áramót

Frigg nefnist nýr miðlægur gagnagrunnur nemendaupplýsinga í skólakerfinu. Gagnagrunnurinn mun m.a. halda utan um skráningu barna og ungmenna í, úr og milli skóla og námsárangur nemenda í hinu nýja samræmda námsmati, Matsferli, á síðari stigum. Stefnt er að því að opna gagnagrunninn fyrir lok þessa árs. „Frigg er samstarfsverkefni mennta- og barnamálaráðuneytisins, Miðstöðvar menntunar og…Lesa meira

true

Kortlögðu spilahegðun Íslendinga

Út er komin skýrsla um rannsókn á spilahegðun og spilavanda Íslendinga á árinu 2023. Rannsóknin er unnin fyrir fastanefnd um happdrættismál og fjármögnuðu happdrættisfélögin rannsóknina. Höfundur skýrslunnar er Daníel Þór Ólason. Niðurstöður sýna meðal annars að rúmlega 69% þátttakenda spiluðu peningaspil a.m.k. einu sinni á síðustu 12 mánuðum fyrir könnun. Vinsælustu peningaspilin voru Lottó, flokkahappdrætti,…Lesa meira