Lottó er vinsælasta peningaspilið hér á landi.

Kortlögðu spilahegðun Íslendinga

Út er komin skýrsla um rannsókn á spilahegðun og spilavanda Íslendinga á árinu 2023. Rannsóknin er unnin fyrir fastanefnd um happdrættismál og fjármögnuðu happdrættisfélögin rannsóknina. Höfundur skýrslunnar er Daníel Þór Ólason. Niðurstöður sýna meðal annars að rúmlega 69% þátttakenda spiluðu peningaspil a.m.k. einu sinni á síðustu 12 mánuðum fyrir könnun. Vinsælustu peningaspilin voru Lottó, flokkahappdrætti, skafmiðar og bingó. Ólíkt fyrri könnunum var enginn munur á heildarspilun karla og kvenna eða á þátttöku þeirra í peningaspilum á innlendum vefsíðum. Konur voru líklegri en karlar til að eiga miða í flokkahappdrætti en karlar voru hins vegar mun líklegri til að leggja fé undir í spilakössum, póker, íþróttaveðmálum og í peningaspilum á erlendum vefsíðum.

Kortlögðu spilahegðun Íslendinga - Skessuhorn