
Fyrirtaks aðstaða er á Grímsstöðum til að taka á móti gestum. Ljósmyndir: Helga Björnsdóttir
Fjölmenni mætti á Beint frá býli daginn á Grímsstöðum – myndasyrpa
Í gær var Beint frá býli dagurinn haldinn á nokkrum stöðum á landinu. Þessi nýbreytni var tekin upp á síðasta ári en þá var gestum á Vesturlandi boðið að Háafelli í Hvítársíðu. Nú var röðin komin að Grímsstöðum í Reykholtsdal en Jóhanna Sjöfn Guðmundsdóttir er formaður stjórnar Beint frá býli. Á Grímsstöðum er rekið sauðfjár- og hrossabú auk þess sem starfrækt er kjötvinnsla og örsláturhús. Gestir gátu forvitnast um starfsemina á búinu.