Fréttir

true

Framkvæmdir fyrir skólabyrjun

Töluverður fjöldi iðnaðarmanna er nú að störfum við Grunnskóla Grundarfjarðar. Á skólalóðinni er verið að endurnýja leiktæki sem fauk út í veður og vind í ofsaveðri fyrir nokkrum misserum og fyrir neðan hús voru iðnaðarmenn á fullu við að græja tónlistarskólann fyrir skólabyrjun. Miklar framkvæmdir hafa verið í tengslum við orkuskiptin í sundlauginni en gera…Lesa meira

true

Borgnesingar hlaupa til styrktar Gleym-mér-ei styrktarfélagi

Guðrún Hildur Hauksdóttir og Björgvin Fjeldsted í Borgarnesi áttu von á tvíburum nú í vor. Við fæðinguna kom í ljós að dóttir þeirra, Ylfa Dís, var ekki með hjartslátt og úrskurðuð látin. Ísar Leó sonur þeirra er aftur á móti við góða heilsu, sprækur strákur. Nú hafa um 50 vinir og vandamenn fjölskyldu þeirra Guðrúnar…Lesa meira

true

Gjaldfrjálsar skólamáltíðir verða í öllum grunnskólum á Vesturlandi

Sveitarfélögin á Vesturlandi hafa öll samþykkt að veita nemendum grunnskóladeildar hvers sveitarfélags gjaldfrjálsar máltíðir á væntanlegu skólaári. Fyrr í sumar samþykkti Alþingi frumvarp innviðaráðherra um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem heimilar Jöfnunarsjóði sveitarfélaga að greiða framlög til sveitarfélaga sem bjóða upp á skólamáltíðir. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir eru liður í aðgerðum stjórnvalda til að styðja…Lesa meira

true

Kirkjuturninn í yfirhalningu

Fyrir nokkrum misserum hófst vinna við að laga múrklæðningu á Grundarfjarðarkirkju og nú í sumar var framhald á því. Verktakar eru búnir að vera að vinna við turn kirkjunnar undanfarna daga og verður mikill munur á ásýnd byggingarinnar þegar verkinu verður lokið.Lesa meira

true

Konur skipa nýja stjórn nemendafélagsins

Fjölbrautaskóli Snæfellinga er nú kominn í gang eftir sumarleyfi. Meðfram hefðbundnu skólastarfi stendur undirbúningur í fullum gangi fyrir 20 ára afmæli skólans sem verður haldið hátíðlegt föstudaginn 30. ágúst. Á meðfylgjandi mynd má sjá nýja stjórn Nemendafélags Fjölbrautaskóla Snæfellinga sem er eingöngu skipuð stúlkum í þetta skiptið. Stjórnin stillti sér upp með skólameistara og námsráðgjafa…Lesa meira

true

Nýr Íslandsmeistari í hrútadómum krýndur

Bjarni Hermannsson á Leiðólfsstöðum í Dölum er nýr Íslandsmeistari í hrútadómum. Hann sigraði eftir harða keppni á Íslandsmótinu sem fram fór við Sauðfjársetrið í Sævangi á Ströndum á sunnudaginn. Í öðru sæti varð Jón Þór Guðmundsson í Galtarholti í Hvalfjarðarsveit og þriðja varð Hadda Borg Björnsdóttir á Þorpum við Steingrímsfjörð á Ströndum. Bæði Jón Þór…Lesa meira

true

Sigursteinn Ásgeirsson bikarmeistari FRÍ

Síðastliðinn laugardag fór 57. bikarkeppni FRÍ fram á Kópavogsvelli. Sigursteinn Ásgeirsson frá Þorgautsstöðum í Hvítársíðu keppti á mótinu í kúluvarpi en hann keppir undir merkjum ÍR. Sigursteinn gerði sér lítið fyrir og sigraði í keppninni með því að kasta kúlunni 16,06 metra. Sigursteinn náði þannig að verða Íslands- og bikarmeistari í sumar en hann heldur…Lesa meira

true

Skagamenn með frábæran sigur á Víkingi

Víkingur Reykjavík og ÍA áttust við í Bestu deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var viðureignin á Víkingsvelli. Leikurinn í Víkinni fór fjörlega af stað og strax á sjöttu mínútu komust heimamenn yfir í leiknum þegar hinn næstum fertugi Óskar Örn Hauksson fékk boltann við teig Skagamanna. Hann átti góða sendingu beint á kollinn…Lesa meira

true

Líf og fjör þegar sjómenn halda til veiða eftir sumarfrí

Það var talsvert líf í höfnunum í Rifi og Ólafsvík í gær þegar bátar voru að gera sig klára til veiða eftir sumarfrí. Að sögn Andra Steins Benediktssonar framkvæmdastjóra Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar eru bátar að gera sig klára fyrir nýtt kvótaár sem byrjar 1. september, en nokkrir bátar hafa þó róið að undanförnu og afli verið…Lesa meira

true

Bæjarstjórn skorar á alla hlutaðeigandi að ná samningum

Yfirlýsing bæjarstjórnar Akraness vegna málefna Skagans 3X Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar sendi síðdegis í gær frá sér yfirlýsingu vegna þeirra stöðu sem komin er upp að ekki tókst að selja þrótabú Skagans 3X í einu lagi. Hún er þannig í heild sinni: „Frá því í lok maí hefur Akraneskaupstaður komið að viðræðum, við stjórnendur Skagans 3X um…Lesa meira