
Starfsmenn Grundarfjarðarbæjar setja upp nýja aparólu á leikvellinum. Ljósm. tfk
Framkvæmdir fyrir skólabyrjun
Töluverður fjöldi iðnaðarmanna er nú að störfum við Grunnskóla Grundarfjarðar. Á skólalóðinni er verið að endurnýja leiktæki sem fauk út í veður og vind í ofsaveðri fyrir nokkrum misserum og fyrir neðan hús voru iðnaðarmenn á fullu við að græja tónlistarskólann fyrir skólabyrjun. Miklar framkvæmdir hafa verið í tengslum við orkuskiptin í sundlauginni en gera þurfti miklar breytingar í líkamsræktinni og tónlistarskólanum. Nú er haustið á næsta leyti og því unnið af krafti að svo hægt verði að hefja eðlilega starfsemi þar von bráðar.