
Skólamáltíðir verða nú gjaldfrjálsar á öllu Vesturlandi. Ljósm. úr safni/ sas
Gjaldfrjálsar skólamáltíðir verða í öllum grunnskólum á Vesturlandi
Sveitarfélögin á Vesturlandi hafa öll samþykkt að veita nemendum grunnskóladeildar hvers sveitarfélags gjaldfrjálsar máltíðir á væntanlegu skólaári. Fyrr í sumar samþykkti Alþingi frumvarp innviðaráðherra um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem heimilar Jöfnunarsjóði sveitarfélaga að greiða framlög til sveitarfélaga sem bjóða upp á skólamáltíðir. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir eru liður í aðgerðum stjórnvalda til að styðja við nýgerða langtímakjarasamninga á vinnumarkaði.