
Bjarni Hermansson á Leiðólfsstöðum kátur með titilinn og farandgripinn sem nefnist Horft til himins. Ljósm. Sauðfjársetrið Ströndum
Nýr Íslandsmeistari í hrútadómum krýndur
Bjarni Hermannsson á Leiðólfsstöðum í Dölum er nýr Íslandsmeistari í hrútadómum. Hann sigraði eftir harða keppni á Íslandsmótinu sem fram fór við Sauðfjársetrið í Sævangi á Ströndum á sunnudaginn. Í öðru sæti varð Jón Þór Guðmundsson í Galtarholti í Hvalfjarðarsveit og þriðja varð Hadda Borg Björnsdóttir á Þorpum við Steingrímsfjörð á Ströndum. Bæði Jón Þór og Hadda hafa áður unnið Íslandsmeistaratitil.