
Borgnesingar hlaupa til styrktar Gleym-mér-ei styrktarfélagi
Guðrún Hildur Hauksdóttir og Björgvin Fjeldsted í Borgarnesi áttu von á tvíburum nú í vor. Við fæðinguna kom í ljós að dóttir þeirra, Ylfa Dís, var ekki með hjartslátt og úrskurðuð látin. Ísar Leó sonur þeirra er aftur á móti við góða heilsu, sprækur strákur. Nú hafa um 50 vinir og vandamenn fjölskyldu þeirra Guðrúnar og Björgvins ákveðið að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka næstkomandi laugardag og stofnaður var hlaupahópur sem hleypur í þágu Gleym-mér-ei styrktarfélags, til heiðurs minningu Ylfu Dísar. Félagið Gleym-mér-ei styður við foreldra og fjölskyldur sem hafa upplifað missi á meðgöngu og í eða eftir fæðingu. Nú í þessum skrifuðu orðum er áheita upphæðin komin upp í tæpar 1,7 milljón króna og segir Guðrún það merki um mikinn stuðning úr samfélaginu. „Við finnum fyrir miklum stuðningi hér. Til dæmis var ég að ganga með Ísar á Borgarbrautinni og þá var kona hinum megin við götuna sem kallar á mig og þverar götuna og faðmar mig. Mér finnst þetta einkenna svona lítið bæjarfélag eins og við búum í,“ segir Guðrún Hildur í samtali við blaðamann.