
Tjaldur SH frá Rifi heldur til veiða. Ljósmyndir: AF
Líf og fjör þegar sjómenn halda til veiða eftir sumarfrí
Það var talsvert líf í höfnunum í Rifi og Ólafsvík í gær þegar bátar voru að gera sig klára til veiða eftir sumarfrí. Að sögn Andra Steins Benediktssonar framkvæmdastjóra Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar eru bátar að gera sig klára fyrir nýtt kvótaár sem byrjar 1. september, en nokkrir bátar hafa þó róið að undanförnu og afli verið með ágætum í öll veiðarfæri. Menn hafa þó reynt að lágmarka að veiða þorsk. Andri segir að nokkrir bátar hafa haldið á Skagaströnd og Sauðarkróks til veiða og reynt að ná í ýsu.