Skrifað var undir viljayfirlýsingu um Frigg í síðustu viku. F.v. Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, og Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands. Ljósm. sís

Stefnt að opnun nýs gagnagrunns um skólakerfið fyrir áramót

Frigg nefnist nýr miðlægur gagnagrunnur nemendaupplýsinga í skólakerfinu. Gagnagrunnurinn mun m.a. halda utan um skráningu barna og ungmenna í, úr og milli skóla og námsárangur nemenda í hinu nýja samræmda námsmati, Matsferli, á síðari stigum. Stefnt er að því að opna gagnagrunninn fyrir lok þessa árs. „Frigg er samstarfsverkefni mennta- og barnamálaráðuneytisins, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Stafræns Ísland (SÍ) og Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) um samræmt verklag við nemendaumsýslu og innleiðingu þvert á skóla og sveitarfélög,“ segir í tilkynningu.

Stefnt að opnun nýs gagnagrunns um skólakerfið fyrir áramót - Skessuhorn