
Gréta Björg Jakobsdóttir með glæsilegan hæng sem hún veiddi í Jónsbakka í Flekkudalsá. Ljósm. Svanþór.
Flekkudalsá hefur gefið 130 laxa
„Við vorum að koma úr Flekkudalsá í Dölum og fékk hollið tvo laxa. Það er mikið af fiski allavega í Jónsbakka, en hann er tregur. Þar hefur veiðst vel í sumar, yfir 40 laxar í hylnum,“ sagði Gréta Björg Jakobsdóttir, en hún og eiginmaður hennar Svanþór Laxdal fengu báða laxana í Jónsbakka. „Minn lax var 66 sentimetrar og tók svarta Frances en lax Svanþórs var 76 sentimetrar og tók Sunrary. Það var ansi kalt þarna síðasta daginn okkar í Flekkudalsá en mjög gaman,“ sagði Gréta ennfremur.