Halla Tómasdóttir forseti Íslands heimsótti bæinn ásamt Birni bónda sínum. Hér er hún ásamt fulltrúum gestgjafa á leiðinni út í Stykkið. Ljósm. sá.

Afmælishátíð Danskra daga gekk glimrandi vel

Bæjarhátíðin Danskir dagar var haldin helgina 16.-18. ágúst í Stykkishólmi, en hátíðin var fyrst haldin árið 1994. Dagskráin var vegleg í ár og var fjölmargt í boði fyrir börn á öllum aldri. Mikill fjöldi brottfluttra Hólmara lét sjá sig. Hverfagrillin á föstudeginum voru mjög vel sótt. Halla Tómasdóttir forseti Íslands ávarpaði gesti á hafnartónleikum úti á stóru bryggju en hápunktar hátíðarinnar var án nokkurs vafa þegar Jörgen Olsen flutti lagið „Fly On The Wings Of Love“ við mikinn fögnuð gesta. Eftir það var glæsileg flugeldasýning sem lýsti upp Súgandisey og höfnina í Stykkishólmi.

Afmælishátíð Danskra daga gekk glimrandi vel - Skessuhorn