Fréttir

true

Skíðadeild UMFG hyggst byggja nýtt aðstöðuhús

Á fundi skipulags- og umhverfisnefndar Grundarfjarðarbæjar síðasta miðvikudag var lagt fram erindi Skíðadeildar UMFG. Þar kemur fram að skíðadeildin hyggst fjarlægja núverandi aðstöðuhús og byggja nýtt og stærra aðstöðuhús á sama stað. Með erindinu fylgdi uppdráttur að húsinu og önnur gögn. Um er að ræða stálgrindarhús klætt með yleiningum. Reynt verður að láta húsið falla…Lesa meira

true

Rósa Guðrún með útgáfutónleika í Kaldalóni á laugardaginn

Tónlistarkonan Rósa Guðrún Sveinsdóttir fagnar útgáfu annarrar plötu sinnar laugardaginn 15. mars kl. 20 með tónleikum í Kaldalóni í Hörpu. Þar mun einnig fyrstu plötu hennar, Strengur Stranda, verða gerð skil þar sem sú plata fagnaði tíu ára útgáfuafmæli á síðasta ári. Rósa Guðrún er söngkona, baritónsaxófón- og flautuleikari en hún varð fyrst á Íslandi…Lesa meira

true

Áætlanir um Upplifunargarð í Borgarnesi settar á ís

Latibær stendur á tímamótum á þessu ári og heldur upp á 30 ára afmælið sitt. Frumkvöðullinn Magnús Scheving og félög tengd honum keyptu aftur alla Latabæjar sjónvarpsþættina á 27 tungumálum og öll hugverkaréttindi Latabæjar um heim allan. Þá hefur í nokkur ár verið til skoðunar að setja upp Upplifunargarð í Borgarnesi, heimabæ Magnúsar. Í tilkynningu…Lesa meira

true

Færri komust að en vildu á Kútmagakvöldi Lions í Grundarfirði

Síðastliðinn laugardagskvöld var árlegt Kútmagakvöld Lionsklúbbs Grundarfjarðar haldið í sal FSN. Viðburðurinn er jafnan stærsta fjáröflun klúbbsins og hefur vaxið ár frá ári. Fyrstu árin var komið saman í Samkomuhúsinu en nú dugar ekkert minna en salur FSN. Á hátíð þessari er engu til sparað í mat þar sem ljúffengt sjávarfang er í öndvegi. Auk…Lesa meira

true

Bjarni fjallar um mölun matkorns fyrr á tímum

Fyrsti viðburður Landbúnaðarsafnsins á þessu ári verður haldinn í Skemmunni á Hvanneyri annað kvöld, miðvikudaginn 12. mars kl. 20. Þar mun Bjarni Guðmundsson ríða á vaðið og segja frá mölun korns og minjum því tengdu. Erindi hans nefnist; Að mala korn – Mylluhóll á Hvanneyri og minjar uppi í Hálsasveit. „Í erindinu verður fjallað um…Lesa meira

true

Stofnuðu Hagsmunasamtök landeigenda vegna Holtavörðuheiðarlínu 1

Síðastliðinn fimmtudag var í félagsheimilinu Brún haldinn stofnfundur Hagsmunasamtaka landeigenda vegna Holtavörðuheiðarlínu 1. Á fundinn mættu þeir sem eiga það sammerkt að eiga jarðir á fyrirhugaðri lagnaleið aðalvalkostar Landsnets á Holtavörðuheiðarlínu 1, allt frá Skarðsheiði og að Þverárhlíð. Á fundinum voru samþykktir nýs félags afgreiddar, kosin stjórn og línur lagðar fyrir starf félagsins. Eiríkur Blöndal…Lesa meira

true

„Því bollur geta veröldinni breytt“

Hans klaufi heilsar upp á fólk í Þinghamri Leikdeild Umf. Stafholtstungna frumsýndi leikritið Hans klaufa síðastliðinn sunnudag fyrir fullum sal áhorfenda á öllum aldri. Margir kannast við gamla ævintýrið um Hans klaufa, sem var einfeldningur, en þó skarpari en flestir hnífarnir í skúffunni. Verkið, sem sett er á svið í félagsheimilinu Þinghamri í Stafholtstungum byggir…Lesa meira

true

Með fimmtíu stig fyrir Skallagrím gegn Breiðabliki

Skallagrímur úr Borgarnesi heimsótti Breiðablik í 20. umferð 1. deildar karla í körfubolta á föstudaginn. Skallagrímur var fyrir leikinn í neðsta sæti deildarinnar með átta stig en Breiðablik í 7. sæti með 16 stig. Mikið jafnræði var með liðunum í byrjun leiks en þegar þrjár mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta náðu gestirnir, leiddir áfram…Lesa meira

true

Skagakonur unnu stórsigur á Aftureldingu

ÍA og Afturelding mættust í B deild kvenna í Lengjubikarnum í knattspyrnu í hádeginu á laugardaginn og var viðureignin í Akraneshöllinni. Fyrir leik höfðu Skagakonur unnið fyrstu þrjá leikina í Lengjunni á meðan gestirnir úr Mosó höfðu aðeins unnið einn leik og tapað tveimur. Saga Líf Sigurðardóttir kom Aftureldingu í forystu á 7. mínútu þegar…Lesa meira

true

Optical Studio heimsækir Snæfellsnes á fimmtudaginn

Núna á fimmtudaginn 13. mars heimsækir Optical Studio gleraugnaverslun Snæfellsnes og mun setja upp fullbúna verslun í Samkomuhúsinu á Grundarfirði þann dag. Verslunin verður opin frá kl. 9:30-18:30. „Í 40 ára sögu versluninnar hefur hún eignast fjölda viðskiptavina út um allt land. Nú er tekið það skref að færa þjónustuna nær okkar landsbyggðarviðskiptavinum og um…Lesa meira